Barni dagsins í morgunblaðsgrein Varðveitt í ísskap og albúmi Datt síst Í hug Að staða himintunglanna Þann dag Hefði áhrif á ókomna stund Með dýnu á forstofugólfinu Og nótt Og nekt Og orð sem féllu af tilviljun En skildu eftir sár Og vonlausa þrá Það er sérstök tilfinning Að muna ekki mynd Og muna ekki orð En muna svo vel