Mánudagsmorgunn á fætur ég fer, höfuðið á mér þunnt eins og gler. Ég þrái að fá þig – sjá þig sofa eina nótt hjá þér. Hvað var ég að gera, hvar fékk ég að vera í ókunnri borg svo fjarri þér. Ég þrái að sjá þig – fá þig fíla eina nótt hjá þér. Tungan við góminn er eins og gróin, gerbragð í munni af öldrykkju er. Ég þrái að fá þig – sjá þig sofa eina nótt hjá þér. Ég horfi út um dyrnar, geng út um gluggann, geri allt vitlaust hvar sem ég fer. Ég þrái að sjá þig – fá þig fíla eina nótt hjá þér. Í hillingu heyri ég þig syngjandi sálma. Svona ertu heilög í augum á mér Ég þrái að fá þig – sjá þig sofa eina nótt hjá þér.