AWA

Fannfergi hugans

0
0
  • 2023.10.20
  • 3:55
AWAで聴く

歌詞

Hún er silki og stál, hún er stórsjór og bál, hún er afl mitt í hendi, hún er hjarta míns mál. Þegar heimur og drótt höfðu loks um sig hljótt, í fannfergi hugans ég fann hana' í nótt. Það var dimmt það var dögg og í dreyranum lögg en ég fann hvernig hjartað sló högg eftir högg. Þar sem áður var tóm eru nú aðeins blóm. Í kuldanum ástin hún kvað upp sinn dóm. Það er ólýsanlegt já, og alls engu líkt, þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt hversu öflug hún er hversu hreint ótrúleg hvað hún örvar og sefar í senn trúðu mér. Það var hvasst, úfinn sær, það var nýfallinn snær, þó var innra með mér aðeins andvari vær. já, ég vissi sem var og ég skynjaði þar í mjöllinni hitann sem með sér hún bar. Það er ólýsanlegt já, og alls engu líkt, þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt hversu öflug hún er hversu hreint ótrúleg hvað hún örvar og sefar í senn trúðu mér. Dag eftir dag eftir dag eru óteljandi sálir sárar víst dag eftir dag eftir dag hverfur sól en síðan styttir upp, styttir upp á ný. Það er ólýsanlegt já, og alls engu líkt þá sjaldan menn komast í tæri við slíkt hversu öflug hún er hversu hreint ótrúleg hvað hún örvar og sefar í senn trúðu mér. Nú er dagur á ný en í kvöld aftur sný ég til fundar við þig þar í rökkrinu því þegar heimur og drótt höfðu loks um sig hljótt í fannfergi hugans ég fann hana' í nótt. Í fannfergi hugans ég fann þig í nótt.

このページをシェア

Sálin hans Jóns mínsの人気曲

Sálin hans Jóns mínsのアルバム

Sálin hans Jóns míns
の他の曲も聴いてみよう
AWAで他の曲を聴く
はじめての方限定
1か月無料トライアル実施中!
登録なしですぐに聴ける
アプリでもっと快適に音楽を楽しもう
ダウンロード
フル再生
時間制限なし