Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg Við skulum tjalda í grænum berjamó Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær Lindin þar niðar og birkihríslan grær. Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum Leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær. Dagperlur glitra um dalinn færist ró Draumar þess rætast sem gistir Vaglaskóg Kveldrauðu skini á krækilyngið slær Kyrrðin er friðandi, mild og angurvær. Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum Leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær Leikur í ljósum lokkum og angandi rósum Leikur í ljósum lokkum hinn vaggandi blær Lokkum hinn vaggandi blær